Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins tilkynnti í gær landsliðshóp sinn fyrir tvo æfingaleiki gegn sænska landsliðinu sem fara fram hér á landi í næstu viku. Ísak Steinsson er einn af þremur markvörðum í landsliðshópnum ásamt Viktori Gísla Hallgrímssyni og Björgvini Páli Gústavssyni. Snorri Steinn var að spurður út í valið á Ísaki fyrir þetta verkefni í viðtali við Handkastið í gær. ,,Við erum alltaf að fylgjast með þeim (markvörðunum). Mér finnst Ísak hafa staðið sig ágætlega eftir áramót. Hann hefur ekki verið í síðustu tveimur verkefnum hjá okkur. Það er mín hugmynd að vera alltaf með þriðja markmanninn. Við vitum alveg hvað Björgvin Páll er gamall og það kemur að því að hann verður ekki þarna, held ég. Við erum að vega og meta hlutina og skoða þetta eftir bestu getu," sagði Snorri Steinn spurður út ákvörðun hans að velja Ísak Steinsson. Markverðir eins og Einar Baldvin Baldvinsson og Ágúst Elí Björgvinsson fengu ekki kallið að þessu sinni en þeir höfðu verið í síðustu verkefnum íslenska landsliðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.