Lokahóf HSÍ verður haldið laugardaginn 30. maí í Austurbæjarbíó en lokahóf HSÍ hefur ekki verið haldið síðan fyrir heimsfaraldurinn Covid-19. Í lýsingunni um viðburðinn sem finna má í miðasöluforritinu Stubbur er sagt að húsið opni 19:30 en veislan hefjist svo 20:00. Við stutta leit Handkastsins á veraldarvefnum virðist sem svo að síðasta lokahóf HSÍ hafi verið haldið á Gullhömrum árið 2018 en lokahóf HSÍ var árlegur viðburður þar sem handboltafólk, þjálfarar og sjálfboðaliðar mættu og gerðu upp tímabilið og skemmtu sér sumir fram eftir morgni. ,,Stútfull dagskrá er í vændum," segir í lýsingu á viðburðinum sem finna má á Stubbur appinu. Miðaverð á lokahóf HSÍ er ekki nema 13.990 krónur. Hér má sjá mynd af Alexander Erni Júlíussyni fyrrum leikmanni Vals á lokahófi HSÍ árið 2015. Tanja Rut leikmaður ÍR lét sig ekki vanta á sama lokahóf Aníta Mjöll byrjaði partýið snemma árið 2012

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.