Þrátt fyrir að hafa aðeins leikið 19 leiki í Olís-deild karla á tímabilinu er Baldur Fritz Bjarnason leikmaður ÍR markakóngur Olís-deildarinnar annað tímabilið í röð. Baldur skoraði 162 mörk í Olís-deildinni í vetur þar af 61 mark úr vítum. Bernard Kristján Darkoh liðsfélagi hans í ÍR sem var fjórði markahæstur í deildinni var langmarkahæsti leikmaður deildarinnar ef tekin úr frá mörk skoruð úr vítum. Hann skoraði alls 142 mörk úr opnum leik á tímabilinu. Arnór Snær Óskarsson leikmaður Vals er 11. markahæsti leikmaður deildarinnar með 114 mörk en hann lék aðeins 14 leiki með Val eftir komu sína frá Kolstad þegar átta umferðir voru búnar af tímabilinu. Handkastið hefur tekið saman 11 markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar tímabilið 2026/2027:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.