Síðustu 4 leikir riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fóru fram í gær og nú er ljóst hvaða lið mætast í útsláttarkeppninni. Við íslendingar áttum 4 fulltrúa í eldínunni í gær. Kolstad stóðu vel í Industria Kielce í gær en mátu þola 26-27 tap engu að síður. Sigvaldi Guðjónsson skoraðu 4 mörk, Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði 2 mörk og Sigurjóni Guðmundssyni tókst ekki að verja eina skotið sem hann fékk á sig. Kolstad enda riðlakeppnina í neðsta sæti A riðils eftir 2 sigurleiki og 12 tapleiki. Bjarki Már Elísson og félagar í Veszprém töpuðu 33-38 fyrir Álaborg þar sem Thomas Arnoldssen var markahæstur með 8 mörk fyrir Álaborg og Luka Cindric var markahæstur fyrir Veszprém með 7 mörk. Bjarki er hinsvegar ennþá frá vegna sköflungsbrots og lék ekki með Veszprém í gærkvöldi. Sporting unnu 30-29 sigur á Dinamo Bucuresti í æsispennandi leik. Costa bræðurnir fóru á kostum og voru báðir með 7 mörk fyrir Sporting. Orri Freyr Þorkelsson skoraði 3 mörk. Þá unnu HBC Nantes 37-34 sigur á Fuchse Berlin þar sem Thibaud Briet var markahæstur með 13 mörk fyrir franska liðið og Mathias Gidsel var atkvæðamestur fyrir Berlínarrefina með 11 mörk. Útsláttarkeppnin lítur svona út Fuchse Berlin mun mæta sigurvegaranum úr leik PSG og Veszprém. Barca munu mæta sigurvegaranum úr leik HBC Nantes og GOG. Álaborg munu mæta sigurvegararnum úr leik Sporting og Wisla Plock. Magdeburg munu mæta sigurvegaranum úr leik Pick Szeged og Kielce. Við eigum því 7 íslenska fulltrúa í útsláttarkeppninni en það eru Bjarki Már Elísson mep Veszprém, Viktor Gísli Hallgrímsson með Barca, Orri Freyr Þorkelsson með Sporting, Janus Daði Smárason með Pick Szeged og Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson með Magdeburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.