Þrjú Íslendingalið áttu leik í kvöld í Svíþjóð og Danmörku en tvö þeirra mættust innbyrðis í Svíþjóð þegar Karlskrona tók á móti Amo. Gestirnir reyndust sterkari í miklum markaleik en Amo vann frábæran fimm marka sigur, 34-39. Arnór Viðarsson var bestur hjá Karlskrona með átta mörk úr níu mörkum og bætti við fjórum stoðsendingum á meðan Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm mörk úr ellefu skotum og bættti við heilum sjö stoðsendingum. Sigurinn er mjög mikilvægur fyrir Amo sem að öllum líkindum forðast umspil um fall með sigrinum en liðið situr í tíunda sæti með 21 stig þegar ein umferð er eftir. Karlskrona er áfram í hörku baráttu um sæti í úrslitakeppnina en Önnereds liðið fyrir ofan Karlskrona tapaði einnig í kvöld og því eru liðin áfram jöfn að stigum fyrir seinustu umferðina. Í Danmörku sóttu Ringsted flott stig gegn Skjern en lokatölur urðu 35-35 en liðið mættust á heimavelli Skjern. Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson skoruðu báðir þrjú mörk úr sex skotum en Guðmundur Bragi gaf fjórar stoðsendingar á meðan Ísak gaf tvær. Ringsted eru núna jafnir Fredericia í sætum átta og níu en Ringsted á tvo leiki eftir en Fredericia á þrjá. Úrslit kvöldsins: Karlskrona 34-39 Amo Skjern 35-35 Ringsted

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.