Segir deildarmeistarana vera rosa brothætta
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Valur varð í gær deildarmeistari í Olís-deild karla eftir sex marka sigur á ÍBV í lokaumferðinni 34-28 í Vestmannaeyjum.

Valur vann deildina með 34 stig en FH endaði í 2.sætinu með 33 stig en FH-ingar enduðu tímabilið á níu sigurleikjum í röð og koma á fljúgandi siglingu inn í úrslitakeppnina. Rætt var um deildarmeistara Vals í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem Einar Ingi Hrafnsson var spurður að því hvort það hafi komið honum á óvart að Valur hafi unnið deildina.

,,Það kemur mér svosem ekkert á óvart. Þeir voru fyrir mót taldir líklegastir þó svo að Ágúst Jóhannsson hafi ekki verið sammála því. Síðan fá þeir Arnór Snær í bónus og þá voru þeir og eru með besta liðið til langtíma. Þeir hafa ekki heillað mig eins mikið og ég vonaðist til. Þeir eru rosa brothættir og hafa tapað í rauninni stórt á heimavelli gegn FH, Haukum og Fram. En gríðarlega sterkt fyrir þá að sigla þessu og gott fyrir Ágúst þjálfara sem var held ég heilt yfir stressaður út frá öllum spám og umræðu. Fyrir hann var þetta gott að hafa klárað þetta en nú tekur við allt annað skrímsli og það er gott fyrir Val að Bjöggi virðist vera að vakna í markinu," sagði Einar Ingi meðal annars í Handkastinu.

Valur mætir HK í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins en 8-liða úrslitin hefjast 25.mars næstkomandi.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top