Í dag mættust Fjölnir og HK 2 í Egilshöll í Grill 66 deild karla. Fjölnismenn réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik. Mikill munur var á liðunum. Eftir korter var staðan var 10-5 og hálfleikstölur voru síðan 20-13. HK-ingar ekki alveg að ná að kreista allt sitt fram. Í seinni hálfleik hélt þetta áfram að vera einstefna. HK-ingar voru aldrei á þeim buxunum að fara að nálgast Fjölnismennina að einhverju ráði. Mest náðu þeir 11 marka forskoti. Lokatölur leiksins urðu síðan 35-26. Hjá Fjölni var Ari Magnússon markahæstur. Bergur Bjartmarsson varði 15 skot. Hjá HK var Bjarki Freyr Sindrason markahæstur með 6 mörk. Markvarslan skilaði aðeins 7 boltum vörðum. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.