Í dag mættust Grótta og Fram 2 í Grill 66 deild karla en leikið var á Seltjarnarnesi. Fyrri hálfleikur var lengi vel gríðarlega jafn, spennandi og skemmtilegur. Munaði litlu á milli liðanna. Oft bara 1-2 mörk. Framarar að hitta á flottan dag. Síðustu mínútur fyrri hálfleiks var Grótta mjög sprækir og náðu góðu forskoti inn í búningsherbergið. Hálfleikstölur 21-16. Seinni hálfleikur reyndist svo vera einstefna að hálfu heimamanna. Eftir korters leik í seinni hálfleik voru þeir komnir í 10 marka forskot. Áfram hélt þetta á þessum nótum og kláruðu þeir leikinn afar sannfærandi. Lokatölur urðu 43-31 fyrir heimamenn í Gróttu. Hjá Gróttu var Atli Steinn Arnarson markahæstur með 11 mörk. Markvarslan skilaði þeim 13 boltum vörðum. Hjá Fram 2 var Gabríel Jónsson Kvaran markahæstur með 7 mörk. Garpur Druzin varði 8 skot. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.