Norðurlöndin: Skara í bikarúrslit
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Fjögur Íslendingalið áttu leik í dag í Danmörku og Svíþjóð en í Svíþjóð er final 4 í sænska bikarnum kvenna megin en næstu helgi fer fram final 4 karla megin. Íslendingaliðin Skara og Kristianstad áttu bæði leik í final 4 en bara annað þeirra komst áfram í úrslitin sem fara fram á morgun.

Í fyrri leik dagsins mættust Skara og Höörs HK, úr varð gífurlega spennandi og skemmtilegur leikur sem lauk með eins marks sigri Skara, 32-31. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Skara en úrslitahelgin fer fram í Skövde sem er ekki langt frá Skara og því þægilegt ferðalag fyrir þær.

Í seinni undanúrslitunum mættust Kristianstad og Boden. Þar reyndust konurnar að norðan, Boden sterkari og þær unnu gríðarlega öflugan sjö marka sigur, 29-36. Berta Rut Harðardóttir átti þó flottan leik í liði Kristianstad en hún skoraði sjö mörk fyrir liðið en það dugði þó ekki til.

Skanderborg hélt öðru sætinu í dönsku deildinni með góðu jafntefli á útivelli gegn GOG í dag, 28-28 urðu lokatölurnar þar sem Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði fjögur mörk úr sjö skotum fyrir gestina. Skanderborg áfram stigi á undan GOG þegar tveir leikir eru eftir en liðið átt gott tímabil í deildarkeppninni í ár.

Ribe-Esbjerg unnu góðan sigur á neðsta sæti deildarinnar, Grindsted á útivelli, 28-32 þar sem Elvar Ásgeirsson var besti maður gestanna en hann skoraði fimm mörk úr sjö skotum og gaf fjórar stoðsendingar.

Úrslit dagsins:

Skara 32-31 Höörs HK

Kristianstad 29-36 Boden

GOG 28-28 Skanderborg

Grindsted 28-32 Ribe-Esbjerg

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top