Rúnar vann lífsnauðsynlegan sigur – Kiel hafði betur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Botnbaráttuslagur fór fram þegar Minden tók á móti Rúnari Sigtryggssyni og lærisveinum hans í Wetzlar. Þá fór fram toppslagur þegar Kiel og Flensburg mættust.

Rúnar Sigtryggsson stýrði sínu liði til sigurs á útivelli gegn Minden 31-33 og eru nú komnir með 10 stig í næsta neðsta sæti deildarinnar. Minden og Bergischer eru bæði með 12 stig.

Dominik Mappes leikmaður Wetzlar var markahæstur í leiknum með tíu mörk og liðsfélagi hans Nafea Ahmed skoraði sjö mörk. Sænski landsliðsmarkvörðurinn sem gekk í raðir Wetzlar frá Kolstad í janúar fann sig enganveginn og varði einungis eitt skot af þeim 21 sem hann fékk á sig og var með 4% markvörslu.

Í Kiel unnu heimamenn nokkuð sannfærandi sigur á Flensburg 37-34. Staðan í hálfleik var 23-17 Kiel í við. Lasse Möller fór á kostum í liði Flensburg og skoraði 14 mörk. Emil Jakobsen skoraði níu mörk en Eric Johansson var markahæstur í liði Kiel með sex mörk ásamt Lukas Zerbe og Veron Nacinovic. Bence Imre skoraði fimm mörk ásamt Nikola Bilyk.

Kiel fór upp fyrir Gummersbach með sigrinum en Gummersbach á leik til góða. Kiel er með sigrinum komið með 36 stig í 4.sæti deildarinnar en Flensburg er áfram í 2.sætiinu með 39 stig. Füchse Berlin getur farið upp fyrir Flensburg vinni þeir Erlangen á morgun.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top