Kiel fær til sín þýskan landsliðsmann
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þýska stórliðið THW Kiel hefur staðfest að félagið hafi tryggt sér þjónustu línumannsins Justus Fischer frá og með sumrinu 2027. Félagið staðfesti félagaskiptin eftir að hafa lengi verið orðað við leikmanninn, sem hafði vakið áhuga fleiri stórliða í Evrópu. 

Fischer hefur verið einn af lykilmönnum í þýska landsliði undanfarin ár og þykir mikilvæg viðbót fyrir Kiel-liðið, sem vill halda áfram að berjast á toppi þýska handboltans. Með komu hans bætist enn meiri gæði í leikmannahóp félagsins sem þegar er meðal þeirra sterkustu í Evrópu. 

Kiel hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á að halda liðinu samkeppnishæfu bæði í þýsku úrvalsdeildinni og í Evrópukeppnum, og þessi nýi samningur er hluti af þeirri stefnu félagsins að halda áfram að laða til sín leikmenn á hæsta stigi.

Justus Fischer er fæddur árið 2003 og hefur leikið með Hannover-Burgdorf frá árinu 2020. Hann var hluti af þýska landsliðinu sem vann til silfurverðlauna á Evrópumótinu í janúar og á Ólympíuleikunum í París árið 2024.

Viktor Szilagyi íþróttastjóri THW Kiel hafði sagt opinberlega frá því að félagið hafði áhuga á þýska landsliðsmanninum, Justus Fischer.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top