Þýski markvörðurinn Phil Döhler sem lék hér á árum áður með FH hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Amo. Þar verður Phil Döhler liðsfélagi Arnars Birkis Hálfdánssonar sem leikið hefur með liðinu síðustu þrjú tímabil. Phil Döhler gengur í raðir Amo frá norska félaginu Sandefjord og hefur gert þriggja ára samning við sænska félagið. Þjóðverjinn hefur áður leikið í Svíþjóð en hann lék með Karlskrona á árunum 2023-2025 en hann gekk í raðir Karlskrona eftir veru sína hér á landi með FH. Amo er í 10.sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 21 stig en ein umferð er eftir af tímabilinu en liðið á leik gegn Alingsås eftir. Þá er Amo einnig í undanúrslitum sænska bikarsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.