Finnur til með ÍR-ingum – Komu inn í tímabilið ekki með neitt plan
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Eftir tvö ár í deild þeirra bestu kvöddu ÍR Olís-deildina eftir tap gegn FH í lokaumferð Olís-deildarinnar á fimmtudagskvöldið.

ÍR enduðu neðstir í deildinni með níu stig en liðið var neðst í deildinni allt tímabilið og náði sér aldrei á strik í deildinni en fóru hinsvegar alla leið í úrslit Powerade-bikarsins og töpuðu þar í úrslitum gegn Haukum. Rætt var um gengi ÍR á tímabilinu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

,,Maður er hálf klökkur að vera kveðja ÍR-liðið. Bjarni Fritzson segir í viðtali við Vísi eftir leikinn í gær að hann taki á sig hvernig liðið mætti til leiks á tímabilinu. Við ræddum það í upphafi tímabils að það voru umræður um það hvernig ÍR mætti til leiks, hvernig liðið æfði í aðdraganda mótsins. Stymmi Klippari bjóst auðvitað við því að Selfoss myndi fá núll stig þannig það var nánast enginn sem var að spá því að ÍR myndi falla. ÍR voru á fullri ferð á síðustu leiktíð og þrælskemmtilegir og voru að gefa mörgum liðum erfiða leiki. En það er ekkert hægt að afsaka það neitt eða réttlæta það að ÍR hafi átt að halda sæti sínu í deildinni þegar þú vinnur ekki fleiri leiki og endar með níu stig eftir 22 leiki. Eina sem maður veltir fyrir sér, hvernig í andskotanum getið þið fallið þegar það er lið sem tapar ellefu leikjum í röð en heldur sér uppi?” sagði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins og átti þar við Stjörnuna sem enduðu í 11.sætinu og hafa tapað ellefu deildarleikjum í röð en sluppu við fall.

,,Ég finn til með ÍR-ingum og því starfi. En ég held að það sé alveg rétt að þeir komu ekki með plan inn í tímabilið. Jökull virtist ekki vera inn í planinu og þeir sváfu á honum í sumar síðan dettur hann upp í hendurnar á þeim. Þessi ofurtrú á hraðanum varð þeim kannski að falli en ég geri mér ekki almennilega grein fyrir því með ÍR, þar sem peningurinn er enginn og leiðinlegt að heyra að Breiðholtspeyjur og stúlkur sem eru með börnin sín í þessu starfi beri ekki meiri virðingu fyrir þessu afreksstarfi og setji smá meiri pening í þetta. ÍR var einu púsli frá því að styðja við þessa gaura sem eru í liðinu," sagði Einar Ingi Hrafnsson sem var gestur í Handkastinu og hélt áfram.

,,Þetta er svipað og maður hefur getað sagt um HK síðustu ár með fullt af efnilegum leikmönnum en hefur vantað einhvern prófíl sem dregur einhverja orku inn í liðið og einhverja leiðtogahæfileika. Þetta ÍR lið á heima í deild þeirra bestu og maður hræðist svolítið hvað gerist núna þegar þeir eru komnir niður í Grillið.”

Rætt var ítarlegra um ÍR-liðið í uppgjörsþætti Handkastsins sem hægt er að nálgast á öllum hlaðvarpsveitum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top