24.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk þegar fjórir leikir gengu í garð. Að vana gaf Daikin lið umferðarinnar og lítur það svona út. Tim Freihöfer(Füchse Berlin) Tim Freihöfer vinstra hornarmaður Füchse Berlin átti góðan leik er lið hans vann Erlangan með sextán mörkum. Tim skoraði 8 mörk úr 9 tilraunum í leiknum. Lasse Andersson(Füchse Berlin) Lasse Andersson leikmaður Füchse Berlin átti góðan leik er lið hans vann Erlangan með sextán mörkum. Lasse skoraði 9 mörk og gaf 3 stoðsendingar. Nicolaj Jørgensen(Hamburg) Nicolaj Jørgensen leikmaður Hamburg átti stórleik er Hamburg sigraði Hannover. Jørgensen skoraði 14 mörk úr jafn mörgum tilraunum og gaf 2 stoðsendingar. Mathias Gidsel(Füchse Berlin) Mathias Gidsel leikmaður Füchse Berlin átti góðan leik er lið hans vann Erlangan. Gidsel skoraði 11 mörk í leiknum. Lukas Zerbe(THW Kiel) Lukas Zerbe hægra hornarmaður Kiel átti góðan leik er lið hans vann Flensburg. Lukas skoraði 6 mörk úr 6 skotum. Justus Fischer(Hannover) Justus Fischer línumaður Hannover átti góðan leik er lið hans tapaði gegn Hamburg. Justus skoraði 10 mörk og gaf 1 stoðsendingu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.