Gunnar Valur hættir með kvennalið Fjölnis
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Handkastið greindi frá því í síðasta mánuði að orðrómur væri uppi um að Gunnar Valur Arason þjálfari kvennaliðs Fjölnis í Grill66-deildinni yrði ekki áfram með liðinu eftir tímabilið.

Gunnar Valur var gestur í Handkastinu á dögunum þar sem hann var spurður út í þann orðróm.

,,Ég verð ekki áfram með kvennaliðið á næsta ári. Ég er búinn að vera með liðið í 6-7 ár og ég held að þetta sé komið gott. Ég held að þetta sé fínn endapunktur núna," sagði Gunnar Valur í hlaðvarpsþætti Handkastsins á dögunum.

Gunnar Valur tók við sameiginlegu liði Fjölnis/Fylkis fyrir tímabilið 2020/2021 og er því á sínu sjötta ári með kvennalið Fjölnis. Fjölnir og Fylkir sameinuðu lið sín fyrir tímabilið sem Gunnar Valur tók við liðinu ásamt Gísla Steinari Jónssyni.

Fjölnir er í 5.sæti Grill66-deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir og eftir úrslitin í síðustu umferð varð ljóst að liðið kemst ekki í umspil um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top