Planið var að skoða hann en þetta getur komið fyrir
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísak Steinsson markvörður Drammen í Noregi hefur þurft að draga sig út úr Íslenska landsliðshópnum fyrir komandi vináttuleiki gegn Svíþjóð og Snorri Steinn Guðjónsson segir að það sé svekkjandi að missa Ísak því þjálfarateyminu hafi langað að skoða Ísak. Ekki er búið að ákveða hvort það verði kallaður inn annar markvörður í stað Ísaks.

,,Ísak bara hringdi í gærkvöldi og við tókum aðeins stöðuna. Við látum daginn í dag líða og metum þetta þá."

,,Hann hefur staðið sig mjög vel og auðvitað er þetta fúlt og mér langaði að sjá hann. Hann hefur held ég ekki verið með okkur í síðustu tveimur glugum. Planið var að skoða hann aðeins en það er bara eins og það er þetta getur komið fyrir."

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top