Sønderjyske rak þjálfarann
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Danska úrvalsdeildarfélagið Sønderjyske sagði upp samningi sínum við þjálfarann Rasmus Vandbæk um helgina.

Félagið er í 10.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 18 stig eftir 24 umferðir en liðið hefur spilað átta leiki á árinu 2026 í deild og bikar án þess að ná í sigur. Stjórnarmenn félagsins voru búnir að sjá nóg.

,,Þetta var auðvitað sárt og þetta hefur líka verið erfiður dagur í dag,“ sagði Vandbæk í viðtali við TV 2 Sport á sunnudaginn en hann sagðist hafa verið tilkynnt um uppsögnina á laugardagskvöld eftir tap liðsins gegn Nordsjaelland 28-30 á heimavelli.

„Ég er í raun alveg skýr með það. Það er alltaf réttur stjórnar að gæta hagsmuna félagsins og ef stjórnin telur að það rétta sé að hrista upp í hlutunum, þá er það það sem hún á að gera. Það er þeirra starf," sagði hann ennfremur við TV2 Sport og bætti við að hann væri hvergi nærri hættur því að þjálfa handboltalið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top