Þrjár breytingar á sænska landsliðshópnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ísland og Svíþjóð mætast tvívegis í æfingaleikjum hér á landi í vikunni. Fyrri leikur þjóðanna fer fram á Hlíðarenda á fimmtudaginn klukkan 19:30 og seinni leikurinn fer fram í Kaplakrika á laugardaginn klukkan 17:00.

Ísak Steinsson markvörður í Drammen þurfti að draga sig úr landsliðshópnum fyrir komandi leiki í gærkvöldi vegna meiðsla. Aðrir leikmenn sem Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari valdi í verkefnið eru heilir heilsu.

Michael Apelgren þjálfari sænska landsliðsins hefur hinsvegar neyðst til þess að gera þrjár breytingar á leikmannahópi sínum vegna meiðsla. Um er að ræða þá Jonathan Carlsbogård leikmann Barcelona, línumanninn Max Darj hjá Füchse Berlín og hægri skyttuna Sebastian Karlsson leikmann PSG.

Inn í hópinn koma þeir Hugo Stuivers leikmaður HK Malmö og liðsfélagi hans Isak Persson. Stuivers er línumaður og Isak Persson er hægri skytta.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top