Tímabilið gæti verið búið hjá Dönu Björgu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Landsliðskonan, Dana Björg Guðmundsdóttir leikmaður Volda í norsku 1.deildinni gæti verið búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Volda en hún gengur í raðir úrvalsdeildarliðsins, Larvik í sumar.

Dana Björg meiddist í leik með Volda í gær en það er handbolti.is sem greinir frá.

,,Útlit er fyrir að hún leiki ekki fleiri leiki á keppnistímabilinu með liðinu. Þar með verður hún ekki með íslenska landsliðinu í síðustu tveimur leikjum undankeppni EM, gegn Færeyingum í Þórshöfn 8. apríl og í heimaleiknum við Portúgal fjórum dögum síðar," segir í frétt Handbolta.is.

Eftir því sem handbolti.is kemst næst slitnaði liðband í ökkla Dönu Bjargar snemma leiks Volda og Glassverket í gær. Volda vann leikinn sannfærandi með tíu marka mun 33-23 en Dana Björg skoraði þrjú mörk í leiknum.

Um væri að ræða slæm tíðindi fyrir íslenska landsliðið fyrir síðustu leiki þess í undankeppni Evrópumótsins sem fara fram í apríl.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top