Mia Kristin Syverud og Perla Ruth Albertsdóttir sneru báðar til baka í lið Selfoss í mikilvægum sigri liðsins gegn Stjörnunni í 19. umferð Olís-deildar kvenna um helgina. Selfoss var á botni deildarinnar fyrir leikinn, einu stigi á eftir Stjörnunni en með sigrinum fór Selfoss upp fyrir Stjörnuna þegar einungis tvær umferðir eru eftir af mótinu. Eitt lið fellur beint niður í Grill66-deildina en næst neðsta sætið fer í umspil um laust sæti. Sú norska, Mia Kristin sneri til baka eftir nokkra vikna fjarveru en hún varð fyrir því óláni að handarbrotnaði á vinstri hendi í leik Selfoss gegn Val í 15. umferð Olís-deildarinnar og fór í aðgerð beint eftir leikinn. Þrátt fyrir það missti hún ekki af nema þremur leikjum í Olís-deildinni. Mia skoraði tvö mörk í leiknum í gær og fiskaði auk þess tvö víti. Þá var Perla Ruth Albertsdóttir í leikmannahópi Selfoss í fyrsta skipti á þessu tímabili en hún átti barn 25. október á síðasta ári. Hún kom þó ekkert við sögu í leiknum en tvær umferðir eru eftir af Olís-deild kvenna og eins og staðan er í dag er Selfoss á leið í umspil. Það mætti því alveg gera ráð fyrir því að Perla leiki með Selfossi í þeim leikjum sem eftir eru af tímabilinu en Perla Ruth dró sig úr íslenska landsliðinu í verkefni í apríl mánuði í fyrra og tilkynnti í kjölfarið að hún gengi með barn undir belti. Selfoss fær Hauka í heimsókn í 20.umferð Olís-deildar kvenna á miðvikudaginn og mæta síðan ÍR í lokaumferðinni næstkomandi laugardag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.