Valdi mitt sterkasta lið og við eigum ekki að þurfa tíma í aðlögun
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslenska karlalandsliðið tekur á móti Svíþjóð í vikunni en framundan eru tveir vináttuleikir sem fara fram hér á Íslandi. Fyrri leikurinn fer fram á fimmtudag og seinni á laugardaginn.

Handkastið ræddi við Snorra Stein Guðjónsson, landsliðsþjálfara Íslands á æfingu liðsins í morgun.

,,Auðvitað eru þetta æfingaleikir en við komum til með að skipta aðeins öðruvísi því það er ekkert mikið undir en þetta breytir því ekki að ég vill fá eitthvað út úr vikunni. Mér finnst mikilvægt að við höldum í þessa einbeitingu sem hefur verið."

,,Ég skynja alltaf þegar hópurinn kemur saman að það er mikil einbeiting og menn hafa gert hlutina vel, bæði á öllum mótum og svo í undankeppnisleikjum og annað slíkt og ég vill bara halda í það. Ég valdi mitt sterkasta lið þannig við eigum ekki að þurfa tíma í einhverja aðlögun og við ætlum bara halda áfram að drilla okkar hluti. Ég vill bara sjá einbeitt lið sem ætlar sér að vinna leikina, við erum að spila við alvöru þjóð en við erum á heimavelli en auðvitað litast þetta eitthvað að því að þetta eru æfingaleikir en það verða einhverjar uppstillingar sem við komum til með að prófa."

Nánar var rætt við Snorra Stein Guðjónsson í spilaranum hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top