Landsliðsmaðurinn, Ýmir Örn Gíslason lék sinn 200. leik í þýsku úrvalsdeildinni í gær þegar Göppingen vann þriggja marka sigur á útivelli gegn Lemgo 27-30. Ýmir Örn komst hinsvegar ekki á blað í leiknum. Ýmir hefur leikið með Göppingen frá árinu 2024 en þar áður lék hann með Rhein Neckar Löwen en hann gekk í raðir Rhein-Neckar Löwen sumarið 2020 frá uppeldisfélagi sínu Val. Ýmir hefur verið lykilmaður með íslenska landsliðinu í fjölmörg ár en síðasta sumar framlengdi hann samningi sínum við Göppingen til ársins 2028.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.