Alfreð opinn fyrir því að halda áfram eftir HM 2027
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands útilokar ekki að halda áfram í starfi eftir að núverandi samningur hans rennur út og segist opinn fyrir viðræðum um framlengingu. Samningur Alfreðs við þýska sambandið rennur út eftir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári.

Í samtali við þýska miðla staðfestir Alfreð að ef þýska handknattleikssambandið (DHB) hafi áhuga á áframhaldandi samstarfi, þá muni hann „alveg örugglega íhuga það mjög vel“.

Hann leggur þó áherslu á að framtíðin sé ekki ákveðin og að hann hugsi fyrst og fremst frá ári til árs. 

Alfreð Gíslason hefur áður gefið í skyn að hann gæti hætt eftir HM 2027 sem fer fram í Þýskalandi, en nú dregur hann úr þeim yfirlýsingum og segir stöðuna opna. Hann ítrekar jafnframt að hann hafi enn mikla ánægju af starfinu með landsliðinu og að það sé langt í 2027, sem þýðir að margt geti breyst á næstu árum.

,,Ég mun halda áfram sem þjálfari eftir 2027 – hvar sem það verður," sagði Alfreð jafnframt.

Ummæli Alfreðs hafa vaki athygli en hann hafði áður sagt í viðtali við Handball-world.news að hann myndi líklega hætta með þýska landsliðið eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi á næsta ári þegar samningur hans við þýska sambandið rennur út.

Nú er hinsvegar annað í honum hljóðið en Þjóðverjar náðu frábærum árangri á Evrópumótinu í janúar þegar liðið sótti silfur eftir tap gegn Dönum í úrslitaleik í Herning.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top