Finnst líklegt að ferlinum sé lokið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson leikmaður Þórs í Olís-deild karla og fyrrum landsliðsmaður finnst líklegt að ferlinum sé lokið og hann leggi skóna á hilluna.

Kári Kristján gekk óvænt í raðir Þórs þegar tímabilið var farið af stað í vetur eftir að samningur hans við ÍBV rann út síðasta sumar og honum var ekki boðinn nýr samningur í kjölfarið. Mikið var rætt og ritað um þá ákvörðun ÍBV en Kári Kristján mætti í viðtal við Handkastið síðasta sumar og sagði sína hlið á málinu.

ÍBV vildi aldrei tjá sig um málið opinberlega fyrir utan mjög svo stutta yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér.

Kári Kristján mun aldrei klæðast treyju íBV aftur er lang vinsælasta frétt Handkastid.net frá upphafi en tæplega 10.000 manns hafa lesið fréttina sem vakti mikla athygli. En Handkastid.net var rétt rúmlega mánaðar gamall vefur þegar sú frétt var skrifuð. 

Allar aðrar fréttir sem tengdust málinu voru virkilega vel lesnar og hafði fólk mikinn áhuga að fylgjast með þessu máli öllu saman síðasta sumar.

Kári Kristján sem er fæddur árið 1984 verður 42 ára í október á þessu ári. Hann er uppalinn í ÍBV en hefur einnig leikið með Haukum og Val hér á landi. Hann fór út í atvinnumennsku sumarið 2009 og gekk í raðir Amicitia Zurich í Sviss. Þaðan fór hann til HSG Wetzlar í Þýskalandi og þá lék hann eitt tímabilið með Bjerringbro-Silkeborg í Danmörku áður en hann kom heim og gekk í raðir Vals.

Þar var hann eitt tímabil áður en hann fór til Vestmannaeyja og lék með ÍBV tíu tímabil áður en hann skipti yfir til Þórs í sumar og lék með liðinu á tímabilinu.

Kári Kristján sagði í samtali við Handkastið að loka ákvörðun yrði tekin á næstu dögum en honum þykir mjög líklegt að hann taki í gikkinn eins og hann orðaði það á næstu dögum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top