Í kvöld mættust HK 2 og Hvíti Riddarinn í Kórnum í Grill 66 deildinni. Fyrstu mínútur leiksins voru HK-ingar sterkari og mættu kraftmiklir til leiks. En eftir um 10 mínútna leik sneri Hvíti Riddarinn blaðinu við. Komust þeir þá 3 mörkum yfir og litu aldrei um öxl eftir það. Staðan í hálfleik var 16-21 fyrir gestunum úr Mosfellsbænum. Í seinni hálfleik héldu Mosfellingarnir uppteknum hætti. Voru þeir lengst af 6-8 mörkum yfir. HK-ingar voru aldrei líklegir til að ógna þeim að neinu ráði. Gríðarlega mikið var skorað í þessum leik og leikmenn lítið fyrir að sýna varnartilburði. Lokatölur leiksins urðu 33-44 fyrir Hvíta Riddarann. Hjá HK 2 var Kristófer Stefánsson markahæstur með 10 mörk. Markvarslan skilaði einungis 5 boltum. Hjá Hvíta Riddaranum var Gísli Rúnar Jóhannsson markahæstur með 12 mörk. Bergvin Snær Alexandersson varði 11 skot. Athygli vakti líka að gamla brýnið Einar Bragason markvarðaþjálfari hjá Aftureldingu kom inn á og klukkaði 2 bolta. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.