ÍBV ekki í vandræðum með fámenna ÍR-inga
{{brizy_dc_image_alt entityId=

ÍBV tók á móti ÍR í 21.umferð Olís deildar kvenna í Vestmannaeyju í kvöld.

Það voru fáliðaðar ÍR stelpur sem mættu til Eyja í kvöld en það voru einungis 12 leikmenn á skýrslu hjá þeim.

ÍBV byrjaði leikinn mun betur í kvöld og náði strax góðu forskoti en Sandra Erlingsdóttir og Birna Dís Sigurðardóttir voru allt í öllu í sóknarleik ÍBV og Amalia Fröland varði 53% skotanna sem komu á hana í fyrri hálfleik. Ekki vænkaðist hagur ÍR-inga þegar Matthildur Lilja Jónsdóttir fékk beint rautt spjald þegar hún braut á Söndru Erlingsdóttur í fyrri hálfleikinn og hafði Grétar Áki, þjálfari ÍR, einungis 9 útileikmenn til að velja úr.

ÍBV leiddi með fimm mörkum þegar liðin gengu til búningsherbergja, 15-10.

Heimakonur héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og átti fámennur hópur ÍR-inga lítil svör við ÍBV í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu, 33-25, ÍBV í vil.

Birna Dís Sigurðardóttir var markahæst í liði Eyjakvenna í kvöld með 8 mörk en hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst eins og oft áður með 13 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top