78. leikur Íslands og Svíþjóðar – Ísland unnið 14
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Karla landslið Íslands og Svíþjóðar mætast í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi. Sá fyrri fer fram í kvöld klukkan 19:30 í N1-höllinni að Hlíðarenda en sá seinni fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði á laugardaginn klukkan 17:00.

Leikurinn í kvöld verður 78. landsleikur þjóðanna ef marka má upplýsingar sem sænska handknattleikssambandið birti á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Þar segir að Svíar hafa unnið 58 af 77 leikjum og Ísland einungis 14. Ísland vann þó síðustu viðureign þjóðanna sem fór fram í Malmö í janúar í milliriðli Evrópumótsins.

Athygli vekur að Ísland hefur náð betri árangri en Svíþjóð á síðustu tveimur stórmótum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top