Berta Rut Harðardóttur hefur gert samning við Handknattleiksdeild Hauka um að leika með félaginu frá og með næsta tímabili. Þetta tilkynntu Haukar rétt í þessu. Berta Rut sem er uppalin Haukakona snýr því aftur heim á Ásvelli eftir 4 ár erlendis þar sem hún hefur leikið með Holstebro Håndbold í Danmörku og Kristianstad HK í Svíþjóð. Haukar segja það mikið ánægjuefni að fá Bertu Rut heim en hún mun án efa styrkja lið Hauka til muna og auka breiddina í hægri skyttu stöðunni. Berta sem verður 26 ára í sumar lék sinn fyrsta leik fyrir Hauka 16 ára gömul og var hún ein af lykilmönnum Haukaliðsins áður en hún lagði land undir fót. Koma Bertu heim í Hauka hjálpar Haukum í þeim markmiðum að vera í baráttunni um alla þá titla sem í boði eru og hlökkum við til að sjá hana á ný í Haukatreyjunni á parketinu á Ásvöllum á næsta tímabili. Við undirskriftina hafði Berta Rut þetta að segja: „Það er ótrúlega gaman að vera komin aftur heim í Hauka. Ég hlakka mikið til að verða hluti af þessum frábæra hópi, leggja mitt af mörkum fyrir liðið og halda áfram að bæta mig sem leikmann.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.