Ísland og Svíþjóð mættust í fyrri æfingaleik þjóðanna í kvöld en leikurinn fór fram í N1-höllinni á Hlíðarenda. Svíþjóð vann með tveimur mörkum 35-33. Handkastið ræddi við Elliða Snæ Viðarsson eftir leikinn í kvöld en Elliði skoraði sjö mörk úr átta skotum og var markahæstur í liði Íslands í kvöld. ,,Það var margt gott og margt sem betur mátti fara og það er kannski einfaldast að lýsa þessu svoleiðis. Mér fannst við ekki ná varnarleiknum hundrað prósent upp, við komumst í margar góðar stöður en náðum síðan ekki að klára þessar varnir en sóknarleikurinn var mjög góður." Nánar var rætt við Elliða Snæ í sjónvarpinu hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.