Elmar Erlingsson leikmaður Nordhorn-Lingen í þýsku B-deildinni verður frá keppni í þrjár til sex vikur vegna axlarmeiðsla. Það er handbolti.is sem greindi fyrst frá hér á landi. Elmar fékk högg á aðra öxlina í leik Nordhorn gegn Potsdam á föstudaginn í síðustu viku. Hann fór í myndatöku vegna meiðslanna á mánudaginn og nú hefur komið niðurstaða. Segulómskoðun sem Elmar fór í leiddi í ljós að Elmar slapp við brot en hlaut fyrsta stigs mar á axlarliðnum. Liðböndin eru ósködduð en líklegt þykir að töluverð innvortis blæðing hafi orðið við höggið. Elmar sem er á sínu öðru tímabili með Nordhorn framlengdi samningi sínum við félagið fyrr á þessu ári og er með samning við félagið út næsta tímabil. Tíu umferðir eru eftir af þýsku B-deildinni og ljóst að Elmar missir að minnsta kosti af næstu þremur leikjum liðsins vegna meiðslanna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.