Er ferli Ólafs Guðmundssonar lokið?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sænska félagið HF Karlskrona tilkynnti í vikunni á samfélagsmiðlum sínum að Ólafur Andrés Guðmundsson myndi yfirgefa herbúðir félagsins þegar tímabilið klárast í vor.

"Tack Olafur" var upphafsorð tilkynningarinnar en Ólafur gekk í raðir Karlskrona sumarið 2023 en meiðsli hafa haft mikil áhrif á hans feril síðustu ár og hefur hann lítið sem ekkert spilað með félaginu eftir komu sína þangað.

Hann gekk í raðir Karlskrona eftir ár hjá Amicitia Zurich í Sviss og þar áður lék hann með Montpellier eitt tímabil. Ólafur hefur verið í atvinnumennsku frá árinu 2010 er hann yfirgaf uppeldisfélag sitt FH og gekk í raðir AG Kaupmannahöfn.

Segja mætti að Ólafur hafi verið á miklu flakki á sínum ferli að undanskildum sex tímabilum með Kristianstad frá árunum 2015-2021. Ólafur Andrés sem verður 36 ára gamall í maí lék einnig eitt tímabil með Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni og þá lék hann rúmlega 120 landsleiki fyrir íslenska landsliðið á árunum 2009-2023.

Miðað við meiðslin sem Ólafur hefur verið að glíma við síðustu ár verður að teljast ansi ólíklegt að Ólafur gangi í raðir nýs félags úr þessu en Ólafur hefur verið að glíma við brjósklos. Það verður hinsvegar að koma í ljós og mun Handkastið fylgjast með gangi mála hjá Ólafi sem er búsettur ásamt fjölskyldu sinni í Kristianstad í Svíþjóð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top