Það er komið að endalokum hjá einum litríkasta „hálf-Íslendingnum“ í alþjóðahandboltanum. Hans Óttar Lindberg Tómasson hefur ákveðið að segja þetta gott með danska landsliðinu eftir langan og farsælan feril. Hornamaðurinn knái spilaði hvorki meira né minna en 308 landsleiki og skoraði yfir 750 mörk fyrir Dani. Það er ekki amaleg tölfræðin. Hann hefur verið hluti af gullkynslóð Dana sem hefur mokað inn titlum á síðustu árum en nú hefur hann ákveðið að segja skilið við danska landsliðið. Hann hefur þó ekki verið hluti af danska landsliðinu á síðustu tveimur stórmótum. Aðeins Lars Christiansen hefur leikið fleiri landsleiki en Hans Óttar með danska landsliðinu en Hans Óttar fæddist í Danmörku en foreldrar hans, Tómas Erling Lindberg og Sigrún Sigurðardóttir eru bæði Íslendingar og léku handbolta með FH á sínum yngri árum. Hans Lindberg er á sínu öðru tímabili með danska félaginu HØJ Elite en hann lék með þeim í dönsku B-deildinni í fyrra en liðið vann sig upp í dönsku úrvalsdeildina fyrir þetta tímabil. Hann lék níu tímabil með HSV Hamburg og síðan átta tímabil með Füchse Berlin áður en hann sneri heim til Danmerkur fyrir síðasta tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.