Íslenska karla landsliðið leikur fyrri vináttulandsleik sinn gegn Svíþjóð í kvöld í N1-höllinni. Leikurinn hefst kl. 19:30 og er í beinni útsendingu á RÚV2. Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari hefur valið 17 leikmenn sem taka þá í leiknum í kvöld. Janus Daði Smárason leikmaður Pick Szeged er utan hóps í kvöld en hann hefur verið að glíma við meiðsli frá því á Evrópumótinu í lok janúar. Þá hafði Ísak Steinsson markvörður Drammen dregið sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla en Snorri ákvað að kalla ekki inn nýjan markvörð í hans stað. Reynir Þór Stefánsson leikmaður MT Melsungen er í landsliðshópnum í kvöld og leikur sinn annan landsleik. Hópurinn er eftirfarandi: Markmenn Aðrir leikmenn Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121)
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26)
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2)
Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8)
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170)
Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205)
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78)
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213)
Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230)
Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27)
Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48)
Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248)
Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48)
Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.