Líkt og Handkastið greindi frá í gær er keppni í Grill66-deild karla ekki enn lokið þrátt fyrir að lokaumferðin hafi farið fram um helgina. HBH, venslalið ÍBV á enn eftir að leika tvo leiki í deildinni þar á meðal gegn Herði frá Ísafirði og einnig ÍH, venslaliði FH. Þar sem Hörður hefur unnið sér inn keppnisrétt í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð hefur þetta áhrif á umspilið sem átti að hefjast á þriðjudaginn í næstu viku. Hörður er stigi á eftir Fjölni í Grill66-deildinni og með sigri gegn HBH fer liðið upp fyrir Fjölni í deildinni. Fari Hörður upp fyrir Fjölni í deildinni mætir liðið Gróttu í undanúrslitum umspilsins á meðan Fjölnir myndi þá mæta Stjörnunni sem endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar. HSÍ hefur nú uppfært mótakerfi sitt og ljóst að umspilið hefst ekki fyrr en föstudaginn 27.mars, þremur dögum seinna en áætlað var. Ekki hefur þó enn verið settur leikdagur á leik HBH og Harðar og því óvíst hvenær það mun skýrast hvaða lið munu mætast í undanúrslitum umspilsins. Það verður að teljast óheppilegt að keppni í næst efstu deild á Íslandi skuli ekki hafa náðst að klárast á tilsettum tíma og liðin í umspilinu séu enn að bíða eftir því að deildin klárist svo þau geti farið að undirbúa sig fyrir umspilið. Vinna þarf tvo leiki í undanúrslitum og þrjá leiki í úrslitaeinvíginu til að tryggja sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Selfoss fór upp í Olís-deildina eftir sigur í umspilinu á síðustu leiktíð eftir að hafa unnið Olís-deildarlið Gróttu í úrslitaeinvíginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.