Sænska handknattleikssambandið kynnti í vikunni þá leikmenn sem spila munu fyrir hið svokallaða deildarlandslið Svía, í tveimur leikjum gegn B-liði Noregs í kvöld og á laugardaginn. Deildarlandsliðið, sem Svíar kalla einfaldlega "Ligalandslaget" er ætlað sem kjörinn vettvangur fyrir leikmenn til að öðlast landsliðs reynslu utan hefðbundinna leikja með A-landsliðinu. Í viðtali á heimasíðu sænska handknattleikssambandsins segir þjálfarinn, Oscar Carlén sem þjálfar Ystads í sænsku úrvalsdeildinni og tekur við danska úrvalsdeildarliðinu Skjern í sumar, markmiðið með leikjunum tveimur gegn Noregi skýrt. Það er að prófa fleiri leikmenn og breikka hópinn. ,,Helsti tilgangur deildarlandsliðsins er að þarna fáum við tækifæri til að prófa marga leikmenn en í þessum tveimur leikjum munu 11 nýir leikmenn fá tækifæri – þetta eru leikmenn sem voru ekki í deildarlandsliðshópnum gegn Noregi síðastliðið haust." Carlen segir að í þessum glugga hafi verið ákveðið að velja leikmenn sem eru almennt góðir varnarmenn. ,,Við getum sniðið hvern glugga eftir ákveðnum áherslum og að þessu sinni höfum við valið sterka, varnarsinnaða leikmenn. Einnig eru nokkrir leikmenn úr 04/05 árganginum sem luku vegferð sinni með yngri landsliðunum í fyrra.“ Þetta vekur spurningar hér á landi. Af hverju er Ísland ekki með sambærilegt fyrirkomulag? Íslenskt landsliðsstarf hefur lengi byggt á tiltölulega þröngum kjarna leikmanna sem spila flestir erlendis. Á sama tíma fá margir leikmenn í Olís-deildinni takmörkuð tækifæri til að sýna sig í landsliðsumhverfi. Deildarlandslið gæti brúað þetta bil og með slíku liði væri hægt að gefa leikmönnum í íslensku deildinni raunveruleg landsliðstækifæri, undirbúa breiðari hóp fyrir stórmót, auðvelda yfirfærslu úr yngri landsliðum upp í A-landslið og styrkja tengsl landsliðs og deildanna á Íslandi. Margir frambærilegir leikmenn hafa lokið landsliðsferli sínum þegar þeir eru ekki lengur löglegir með U-21 árs landsliðinu. Ástæðan er sú A-landsliðið er eini raunverulegi vettvangurinn, kosturinn, fyrir þessa leikmenn því ekkert deildarlandslið eða B-landslið er til staðar. Í stað þess að bíða eftir meiðslum eða afföllum gæti Ísland til að mynda verið búið að koma upp hóp leikmanna sem hefur þegar fengið alþjóðlega reynslu. Reynsla Svía sýnir að þetta þarf ekki að vera flókið – heldur einföld leið til að þróa landslið til lengri tíma. Spurningin er því ekki hvort Ísland geti innleitt deildarlandslið, heldur hvort sambandið sé tilbúið að stíga það skref.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.