Silja Katrín framlengir í Úlfarsárdalnum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Silja Katrín Gunnarsdóttir leikmaður Fram í Olís-deild kvenna og Fram 2 í Grill66-deild kvenna hefur framlengt samningi sínum við Fram. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðli sínum í dag.

,,Það gleður okkur að tilkynna að hún Silja Katrín Gunnarsdóttir, ein af okkar eigin hefur framlengt samning sinn við Fram," segir í tilkynningunni.

,,Silja Katrín er örfhent og spilar í hægra horni og er bráðefnileg og hefur verið í yngri landsliðunum Íslands. Silja hefur verið að koma til baka eftir erfið hnémeiðsli og hefur stimplað sig vel inn á æfingar og í leikjum. Við í Fram hlökkum til að sjá hana vaxa og dafna á næstu árum og fögnum því að hafa hana áfram í okkar herbúðum, enda passar hún vel inn í okkar módel sem byggir á því að gefa okkar uppöldu leikmönnum pláss til að ná árangri á stærsta sviðinu," segir enn fremur í tilkynningunni.

Silja Katrín hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands undanfarin ár en hún er fædd árið 2008. Silja Katrín gerir tveggja ára samning við Fram sem gildir til ársins 2028.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top