Sjáðu sænska landsliðsmenn reyna fyrir sér í íslensku
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslenska landsliðið mætir sænska landsliðinu í tveimur vináttulandsleikjum sem fara fram í kvöld og á laugardaginn. Leikurinn í kvöld fer fram í N1-höllinni á Hlíðarenda og á laugardaginn fer leikurinn fram í Kaplakrika.

Sænska landsliðið hefur verið hér á landi síðustu daga í undirbúningi sínum fyrir leikina tvo. Sænska sambandið birti í gær skemmtilegt myndband á samfélagsmiðlum sínum af liðsfélögunum Felix Möller og Fabian Norsten leikmönnum Álaborgar reyna fyrir sér bera fram íslensk orð.

Með þeim til halds og trausts var læknir sænska landsliðsins, Arnar Sigurðsson.

Þeir félagar fengu nokkur íslensk orð sem flest tengjast handbolta og áttu að reyna bera þau rétt fram. Arnar Sigurðsson leiðrétti þá síðan í kjölfarið.

Myndbandið er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top