Íslenska karla landsliðið tók á móti sænska landsliðinu í kvöld í fyrri vináttulandsleik þjóðanna sem fara fram í þessari viku hér á landi. Leikurinn í kvöld fór fram fyrir framan fullri stúku í N1-höllinni að Hlíðarenda. Sænska landsliðið vann leikinn með tveimur mörkum 33-35. Lítið var um varnir í fyrri hálfleik og fóru liðin með jafna stöðu í hálfleik 19-19 eftir að Viggó Kristjánsson hafi klikkað sínu fyrsta víti í leiknum örfáum sekúndum fyrir hálfleik. Viggó var markahæstur íslenska liðsins í fyrri hálfleik ásamt Elliða Snæ Viðarssyni með fimm mörk en öll mörk Viggós komu af vítalínunni. Björgvin Páll Gústavsson stóð í marki íslenska landsliðsins í fyrri hálfleik og varði fjögur skot, eða 17% markvörslu. Snorri Steinn Guðjónsson rúllaði vel á liðinu og alls léku tíu leikmenn Íslands í fyrri hálfleik. Sömu sögu er að segja af sænska landsliðinu en tíu leikmenn Svíþjóðar skoruðu í fyrri hálfleiknum og alls hafði Michael Apelgren leikið ellefu útileikmönnum í fyrri hálfleik. Sænska liðið náði snemma forskoti í seinni hálfleiknum og hélt því út allan leikinn og uppskar að lokum tveggja marka sigur 33-35. Elliði Snær Viðarsson var markahæstur í liði Íslands með sjö mörkum og Orri Freyr Þorkelsson kom næstur með sex mörk þar af þrjú úr víti. Viktor Gísli Hallgrímsson lék í marki Íslands í seinni hálfleik og var með fjóra varða bolta, 20% markvörslu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.