Ísland og Svíþjóð mættust í fyrri æfingaleik þjóðanna í kvöld en leikurinn fór fram í N1-höllinni á Hlíðarenda. Svíþjóð vann með tveimur mörkum 35-33. Handkastið ræddi við Gísla Þorgeir Kristjánsson eftir leik á Hlíðarenda í kvöld. ,,Þetta er auðvitað æfingaleikur og allt það en það er fullt sem er hægt að bæta, fullt sem var fínt í þessum leik. Mér fannst við vera full ,,soft" á köflum og þeir áttu mjög auðvelt með að skora og það var eitthvað sem var ekki staðan út í Malmö, þeir eru auðvitað með frábært lið en það voru þessir litlu hlutir sem mér fannst vera með þeim í dag." Gísli Þorgeir segir að það hafi verið geðveikt að sjá alla Íslendingana í höllinni í kvöld en það er ekki á hverjum degi sem áhorfendur landsins fá svona stórt land í heimsókn til Íslands. Seinni leikurinn er í Kaplakrika á laugardag en Gísli segist vera persónulega mjög spenntur fyrir þeim leik en Gísli Þorgeir er uppalinn í Kaplakrika. ,,Þetta er bara geðveikt. Gaman að fá fullan völl og fyrir mig persónulega verður mjög gaman að spila í Kaplakrika á laugardaginn og það verður bara geggjað."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.