Undankeppni HM 2027 – Samantekt
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Önnur umferðin í undankeppni HM 2027 fer fram þessa dagana þar sem það er landsleikjahlé í deildum Evrópu.

Stórliðin koma ekki inn fyrr en í þriðju umferðinni en það voru þó sex leikir á dagskrá í dag og í kvöld. Samherjar Þorsteins Gauta í finnska landsliðinu töpuðu fyrir Svartfjallalandi á heimavelli, 32-36 og eru því í ákveðinni brekku fyrir seinni leikinn sem fram fer á sunnudagskvöldið.

Stærsti sigur dagsins var í Serbíu en heimamenn unnu gríðarlega þægilegan sigur á Litháen, 42-25. Útiliðin voru öflug í kvöld en Pólverjar, Ísrael og Rúmenar sóttu öll góða sigra á útivelli á meðan Bosnía vann á heimavelli.

Úrslit dagsins:

Bosnía 34-21 Kósóvó

Lettland 24-33 Pólland

Serbía 42-25 Litháen

Finnland 32-36 Svartfjallaland

Georgía 29-32 Ísrael

Tyrkland 32-37 Rúmenía

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top