Framtíð Teits áfram óljós – Ég er ekkert stressaður yfir þessu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Handkastið fjallaði um í janúar að Teitur Örn Einarsson væri orðaður við Wetzlar og Göppingen og var Teitur Örn Einarsson spurður út í stöðu sína á æfingu landsliðsins í vikunni.

Teitur Örn Einarsson er leikmaður Gummersbach en hann er að renna út á samning hjá Gummersbach og eru viðræður um nýjan samning í gangi. Wetzlar og Göppingen eru sögð einnig hafa áhuga á Teiti en hjá Wetzlar myndi Teitur hitta Rúnar Sigtryggson sem þjálfar liðið.

,,Ég er að vega og meta stöðuna mína. Ég er í samningsviðræðum við Gummersbach um framlengingu á samning en ég hef ekki tekið neinar ákvarðanir ennþá."

,,Það eru tvö eða þrjú lið sem standa til boða og ég er vega og meta hvað verður best fyrir mig handboltalega og fyrir fjölskylduna mína."

Teitur var spurður að því hvort það væri óþægilegt að vita ekki hvar hann verður á næstu leiktíð?

,,Já og nei í rauninni. Það væri þægilegt að hafa tíma til að skipuleggja sig og annað en það reddast alltaf. Það þarf ekkert að vera svona langt fram í tímann, við munum alveg græja þetta þótt það séu nokkrir mánuðir í þetta og ég er ekki stressaður yfir þessu og er bara að reyna að finna rétta kostinn fyrir mig."

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top