Fyrstu tvö einvígin í annarri umferð forkeppni HM 2027 í Þýskalandi voru kláruð í dag en þá mættust annars vegar Georgía og Ísrael og hins vegar Grikkland og Belgía. Ísrael hafði unnið heimaleikinn með þremur mörkum og það var búist við erfiðum útileik í Georgíu, fyrirfram var reiknað með því að Georgía myndi komast áfram en þeir voru með á EM í janúar síðastliðnum. Þvert á spár tókst Ísrael að koma á óvart og á endanum héldu þeir út og fóru naumlega áfram eftir tap í dag, 28-30. Samtals fara Ísrael áfram eftir sigur, 60-59. Grikkirnir leiddu eins og Ísraelar með þremur mörkum eftir góðan heimasigur og það var ljóst að þeir voru sterkara liðið í þessu einvígi. Þeir stungu þó aldrei af í dag en héldu Belgum alltaf frá sér og unnu góðan þriggja marka sigur, 31-34 og samtals 63-57. Úrslit dagsins: Ísrael 28-30 Georgía Belgía 31-34 Grikkland

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.