Ísland og Svíþjóð mættust í seinni leik þjóðanna í Kaplakrika í dag og vann Svíþjóð með þremur mörkum 27-30. Handkastið ræddi við Orra Frey Þorkelsson eftir leikinn í Hafnarfirði í dag. Orri Freyr Þorkelsson spilaði seinni hálfleikinn í dag og skoraði þrjú mörk. ,,Það er fínt að fá leiki á móti svona góðu liði. Skemmtilegt að spila á Íslandi og ég er mjög þakklátur öllum þeim sem komu að horfa og styðja okkur í báðum leikjunum. Þetta var hrikalega skemmtilegt verkefni þannig." ,,Ég er drullu svekktur að við töpuðum báðum leikjunum og mér fannst við hafa átt að ná í einn sigur allaveganna í þessu verkefni og það hefði verið ákveðin skilaboð en svona fór þetta." Nánar var rætt við Orra Frey Þorkelsson, leikmann Íslands í viðtalinu hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.