Þrátt fyrir landsleikjahlé þá eru kvennadeildirnar áfram í gangi en Kristianstad þurfti á sigri að halda í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi til að halda möguleikum sínum á úrslitakeppnissæti á lífi. Boden kom í heimsókn niður til Skáni og heimakonur áttu að harma að hefna frá Final 4 helginni áður þar sem norðankonur unnu Kristianstad í undanúrslitunum. Það tókst því miður ekki og gestirnir unnu nauman sigur, 26-27 og Kristianstad því ekki lengur í möguleika á því að komast í úrslitakeppnina. Berta Rut Harðardóttir skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og bætti við einni stoðsendingu. Í dag var síðan einn leikur á dagskrá þegar Sävehof hélt áfram sigurgöngu sinni þegar þær unnu Västerås á útivelli, 24-28. Elín Klara Þorkelsdóttir lét óvenju lítið fyrir sér fara að þessu sinni en hún skoraði fjögur mörk úr fimm skotum en þar af voru þrjú mörk úr vítum, gaf tvær stoðsendingar og fékk einnig eina brottvísun. Sävehof voru fyrir löngu búnar að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og koma í góðu formi inn í úrslitakeppnina en seinasti deildarleikurinn fer fram á þriðjudag. Úrslit helgarinnar: Kristianstad 26-27 Boden Västerås 24-28 Sävehof

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.