Óvænt hrós frá Heiner Brand besta móment lífs hans
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Teitur Örn Einarsson kom með góða innkomu í íslenska landsliðið í vináttuleik Íslands gegn Svíþjóð í fyrradag. Þjóðirnar mætast aftur í Kaplakrika í dag klukkan 17:00 en rætt var um leikinn og Teit í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Það var ekki hægt að hefja umræðuna um Teit án þess að ræða mottuna sem hann er með þessa dagana í tilefni af mottumars.

,,Ég væri til í að vera Teitur af mörgum ástæðum. Ég væri til í að vera í standinu hans," sagði Kristinn Björgúlfsson.

,,Ég hef ekki hugsað um annað en þessa mottu síðan ég sá hana. Þetta er eins og fullvaxta karldýr, tófa í vetrarfeldinum. Ég í alvörunni, gæti ekki nefnt glæsilegri mottu úr Hollywood eða hvaðan sem er. Þetta er alvöru fucking stykki," sagði Ásgeir Jónsson annar af gestum þáttarins og bætti við að bara mottan eins og sér ætti skilið landsliðssæti.

,,Þeir sögðu í útsendingunni að Heiner Brand hafi hrósað honum fyrir mottuna og Teitur hafi sagt að það hafi verið besta móment lífs síns.”

,,En að öllu gríni slepptu þá hefur Teitur verið inn og útúr landsliðinu síðustu fimm ár ef ekki meira og hann hefur eiginlega aldrei fengið tækifæri. Hann hefur alltaf verið einhver varamaður og aldrei verið með hlutverk en mér finnst hann alltaf standa sig. Hann tekur öllum hlutverkum sem hann fær, hvort sem hann á að vera á bekknum, í horninu, í skyttunni og þú færð hann alltaf 100%. Mér finnst það æðislegt og það er hægt að treysta á hann. Hann hefur sýnt það og það kæmi mér virkilega á óvart ef Teitur verður ekki í næstu landsliðshópum Snorra Steins," bætti Kristinn við og hafði greinilega mikið álit af Teiti.

Hér má sjá mottuna sem rætt var um.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top