ÍR tók á móti Selfoss í lokaumferð Olís deildar kvenna í Skógarselinu í dag. Heimakonur voru búnar að tryggja sér 4.sæti deildinnar meðan Selfoss var í mikilli fallbaráttu við Stjörnuna. Það er skemmst frá því að segja að Selfoss sáu aldrei til sólar í dag. ÍR náðu fljótlega sex marka forskoti í fyrri hálfleik og gekk Selfyssingum erfiðlega að stöðvar sóknarlotur ÍR-inga. ÍR voru 10 mörkum yfir í hálfleik, 21-11, og var róðurinn erfiður fyrir Selfyssinga í síðari hálfleik sem þurftu þá að treysta á að Haukar myndu vinna Stjörnuna á Ásvöllum. Síðari hálfleik var með svipuðu sniði og náðu Selfyssingar aldrei að ógna forskoti ÍR að neinu ráði og urðu lokatölur, 33-20 heimakonum í vil. Á sama tíma náði Stjarnan jafntefli við Hauka á Ásvöllum sem þýðir að Selfoss fellur úr Olís deild kvenna eftir að hafa verið með pálmann í höndunum þegar tvær umferðir voru eftir. Sara Dögg Hjaltadóttir var markahæst hjá ÍR í dag með 10 mörk en hjá Selfoss var Marte Syverud markahæst með 4 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.