Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins segist hafa viljað vinna annan af tveimur vináttulandsleikjum gegn Svíþjóð sem fóru fram í vikunni. Ísland tapaði fyrir Svíum í Kaplakrika í dag 27-30 en Svíar unnu fyrri leik þjóðanna í Valsheimilinu fyrr í vikunni. ,,Ég vildi vinna ég get alveg viðurkennt það. Ég þurfti að halda aftan að mér með alskonar hluti og ég held að það sé eðlilegt. Ég held að þegar ég eigi eftir að kíkja til baka þá verð ég nokkuð sáttur með vikuna í heild sinni. Auðvitað er drullu fúlt að tapa og það nærir meira að vinna en við höfum gott af þessu og það var frábært að spila gegn hörkuliði," sagði Snorri Steinn meðal annars í viðtali við Handkastið eftir leik. Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan þar sem Snorri var meðal annars spurður út í það hvernig hann sér fyrir sér næsta landsliðsglugga þegar Ísland fer til Egyptalands og leikur tvo vináttulandsleiki gegn Egyptum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.