Hægri hornamaðurinn, Brynjar Búi Davíðsson hefur framlengt samningi sínum við Aftureldingu. Brynjar Búi gerir þriggja ára samning við félagið sem gildir til ársins 2029. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú í kvöld. Brynjar Búi hefur bæði leikið með Aftureldingu í Olís-deild karla og með Hvíta riddaranum í Grill66-deildinni en hann skoraði 70 mörk í 21 leik með Hvíta riddaranum í Grill66-deildinni í vetur. Brynjar kemur úr afreksstarfi félagsins og hefur í vetur spilað með bæði meistaraflokk félagsins og Hvíta Riddaranum þar sem hann er með 70 mörk í 21 leik. Með Aftureldingu hefur hann skorað fjögur mörk í 18 leikjum í Olís-deildinni. ,,Brynjar er með frábært hugarfar og metnað og mun gera sig gildandi með meistaraflokk félagsins á næstu árum. Brynjar getur spilað sem bæði hægri skytta og hægra horn og er mjög öflugur varnarmaður einnig. Við erum gríðarlega stolt að Brynjar hafi framlengt samningnum sínum við Aftureldingu," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu. Afturelding mætir Haukum í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á fimmtudagskvöldið á Ásvöllum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.