Eftir fjögur ár í Grill66-deildinni tryggði HK sér sæti í Olís-deild kvenna í gærkvöldi eftir sigur á Fjölni í lokaumferð deildarinnar. Það leit ekki vel út fyrir HK fyrir rúmlega viku síðan þegar Grótta var á toppi deildarinnar þegar þrjár umferðir voru eftir en óvænt tap Gróttu gegn FH í þriðju síðustu umferðinni gerði það að verkum að HK endurheimti efsta sætið og vann Grill66-deildina með tveimur sigrum í loka umferðunum. HK hefur hægt og bítandi byggt liðið sitt upp eftir að hafa fallið úr deildinni tímabilið 2021/2022. Í því liði voru leikmenn á borð við landsliðsstelpurnar, Alexöndru Líf Arnarsdóttir, Ölfu Brá Oddsdóttir Hagalín, Berglind Þorsteinsdóttir, Jóhönnu Margréti Sigurðardóttir auk leikmanna eins og Embla Steindórsdóttir, Sara Katrín Gunnarsdóttir, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir og lengi mætti telja. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari karlaliðs Víking var gestur í nýjasta þætti Handkastsins þar sem hann var spurður út í það hvernig honum líst á að fá að sjá HK á nýjan leik í Olís-deild kvenna. ,,Mér líst mjög vel á það. HK er með gríðarlega öflugt starf og hefur lengi verið með góða yngri flokka og framleitt marga góða leikmenn. Það er frábært að sjá HK aftur í Olís-deildinni á næsta tímabili og að sama skapi hryggir það mann, að það á auðvitað eftir að spila þetta umspil en ég vona svo sannarlega að það verði fjölgun í Olís-deild kvenna og við fjölgum í deild þeirra bestu á Íslandi fyrir næstu leiktíð.” En í kjölfarið fór umræða af stað um þá umræðu sem uppi er um að fjölga eigi í Olís-deild kvenna fyrir næstu leiktíð og fara í 10 liða deild en það virðist vera einhugur í handboltahreyfingunni að það sé rétt skref fyrir kvenna handboltann á Íslandi. HK endaði með 38 stig í Grill66-deild kvenna tveimur stigum á undan Gróttu. Næsta lið í deildinni var Víkingur með 20 stig, jafn mörg stig og FH. Öll þessi þrjú lið leika í umspili um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð ásamt Stjörnunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.