Línumaðurinn, Jón Bjarni Ólafsson leikmaður FH lék ekki með FH í tveimur síðustu leikjum liðsins í Olís-deildinni. FH endaði í 2.sæti deildarinnar en liðið vann KA og FH í lokaleikjum tímabilsins án Jóns Bjarna en alls vann FH níu síðustu leiki sína í deildinni. Jón Bjarni meiddist á á ökkla æfingu í aðdraganda leiksins gegn KA. Í samtali við Handkastið sagði Jón Bjarni að þetta væri allt á réttri leið og hann yrði með FH í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. FH mætir þar Íslandsmeisturum, Fram í 8-liða úrslitunum en 8-liða úrslitin hefjast 25.mars. Viðureignirnar í 8-liða úrslitunum: Valur - FH
FH - Fram
Haukar - Afturelding
ÍBV - KA

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.